Frá 2. ágúst 2007 er frítt í bílastæði fyrir visthæfar bifreiðar í Reykjavík í 90 mínútur í senn. Sérstök bílastæðaskífa mun fylgja visthæfum bifreiðum. Slíkar bifreiðar eru sparneytnar á eldsneyti og hafa minni útblástur koltvísýrings (CO2) en aðrar bifreiðar.
Eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík er að umbuna bílstjórum sem menga minna með því að aka um á visthæfum bifreiðum í borginni. Ókeypis verður í gjaldskyld stæði fyrir visthæfar bifreiðar nema í bílastæðahúsum og stæðum sem eru lokuð með hliði. Þessar bifreiðar standast ákveðnar kröfur um útstreymi koltvísýrings og eldsneytisnotkun. Nánar tiltekið:
Bensínbílar/dísilbílar og tvíorkubílar sem gefa frá sér minna en 120 g/km koldioxíð pr. km.
Bílar með brunahreyfli, sem ganga fyrir innlendum orkugjöfum svo sem metani, metanóli, lífdísil
og gefa frá sér minna en 120g koldíoxið pr. km. Bílar sem ganga fyrir rafmagni, tengiltvinnbílar og bílar sem ganga fyrir vetni.
Skráð eigin þyngd bifreiðar skal vera minni en 1.600 kg
Heimildin fellur niður sé bifreiðin á negldum hjólbörðum
Sérstök bílastæðaskífa hefur verið útbúin af þessu tilefni. Skífan er sett í framrúður visthæfra bifreiða og skal vísir hennar stilltur á þann tíma sem lagt er. Bílastæðaverðir geta þá séð hvað bifreiðinni hefur verið lagt lengi. Eigendur slíkra bifreiða geta nálgast skífurnar hjá bílaumboðunum og á það einnig við um bifreiðar sem þegar eru á götunum og uppfylla skilyrðin. Útgefnar heimildir gilda til ársloka 2012. Þá verða allar heimildir innkallaðar og endurskoðaðar.
Ef þú átt nú þegar bíl frá Brimborg sem uppfyllir skilyrði Reykjavíkurborgar komdu þá í Brimborg og náðu í bílastæðaskífu fyrir bílinn þinn. Söluráðgjafar Brimborgar veita allar upplýsingar.